Hátíð á Degi íslenskrar tungu
Kæru sveitungar,
mánudaginn 16. nóvember verður haldin hátíð í Hrafnagilsskóla í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Hátíðin hefst kl. 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 15:00.
Nemendur flytja atriði í tali og tónum sem tengjast þemadögunum, en að þessu sinni er þemað skáld.
Nemendur 7. bekkjar hefja undirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppnina. Þeir lesa brot úr textum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns og greina textana.
Veitingasala 10. bekkjar
Að lokinni dagskrá verða nemendur 10. bekkjar með veitingasölu þar sem boðið verður upp á standandi hlaðborð.
| Hópur | Verð |
|---|---|
| 0–5 ára | Ókeypis |
| Nemendur í 1.–10. bekk | 1.000 kr. |
| Þau sem lokið hafa grunnskóla | 2.500 kr. |
Nemendur 10. bekkjar verða einnig með söluborð og taka niður pantanir í fjölbreyttan varning. Allur ágóði rennur í ferðasjóð bekkjarins.