Kennari og/eða stuðningsfulltrúi við Hrafnagilsskóla

Leitað er eftir kennara í 50% starf og/eða stuðningsfulltrúa á miðstig. Kennarar eru faglegir leiðtogar og sjálfstæðir í vinnubrögðum en þurfa jafnframt að vinna í teymi og í nánu samstarfi við aðra kennara og stoðteymi skólans. Starf stuðningsfulltrúa felst í stuðningi við nemendur inni í bekk ásamt ýmsum störfum með börnum. Ráðið er í starfið/störfin frá og með 1. ágúst.

Menntunar- og hæfniskröfur kennara:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að skipuleggja og undirbúa nám og kennslu. 
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
  • Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.

Menntunar- og hæfniskröfur stuðningsfulltrúa:

  • Nám og/eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
  • Færni og lipurð í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.

Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. Laun stuðningsfulltrúa eru samkvæmt viðkomandi kjarasamningum.

Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 616-8287 og 863-1415. Sótt er um störfin með því að senda umsókn og ferilskrá á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.

Í öllum störfum við Hrafnagilsskóla er gerð krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2026.