Fjörugir lokadagar

Síðasta vika skólaársins var bæði lærdómsrík og skemmtileg. Frá mánudegi til miðvikudags voru þemadagar undir yfirskriftinni Tónlist og hljóð og á fimmtudeginum var svo líflegur og skemmtilegur lokadagur.

Þemadagar eru ómissandi hluti af skólastarfinu, ekki síður en hefðbundnir kennsludagar. Á slíkum dögum gefst tækifæri til að nálgast viðfangsefni á annan hátt, vinna þvert á árganga og kafa ofan í efni sem oft kemst ekki að í daglegu skipulagi. 

Að þessu sinni var þemað ,,tónlist og hljóð”i og nemendur unnu saman í hópum á ýmsum stöðvum. Á stöðvunum fengu nemendur að spreyta sig á alls kyns verkefnum tengdum hljóði og tónlist. Smíðaður var glæsilegur tónlistarveggur úr ýmiskonar efnivið á borð við rör, potta og pönnur. Inni voru föndruð hljóðfæri úr endurnýtanlegum efnum. Krakkarnir léku sér með hljóð úti í náttúrunni, fóru á hljóðaveiðar og í hljóðabingó og tóku upp og báru saman ólík hljóð. Þá rýndu nemendur í eðlisfræðina að baki hljóða. 

Lokadagurinn sjálfur var svo endapunktur á góðu skólaári. Dagurinn hófst með dansatriði í íþróttahúsinu og því næst var spennandi fótboltakeppni milli unglinga og starfsfólks, bæði í kvenna- og karlaflokki. Þar náði Gabriel Lukas Freitas Meira að komast á spjöld sögunnar með því að ná að sigra knattspyrnuleik fyrst sem nemandi og nú sem starfsmaður skólans. Við í skólanum erum svo lánsöm að fá fyrrverandi nemendur til liðs við okkur en Hrafnagilsskóli getur státað af nokkrum frábærum fyrrverandi nemendum í starfsmannahópi sínum. 

Að knattspyrnuleikjum loknum fóru nemendur á fjölbreyttar leikjastöðvar úti þar sem boðhlaup, hópleikir og þrautir voru í forgrunni.

Að lokum var boðið upp á hamborgara og franskar í mötuneytinu og nemendur fóru hinir ánægðustu heim kl. 13:00.

Á morgun, föstudaginn 5. júní, eru skólaslit kl. 18:00 í íþróttahúsinu.