Lokadagur og skólaslit

Lokadagur nemenda þetta skólaárið er fimmtudagurinn 4. júní og þann dag keyra skólabílar heim kl. 13:00. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir og er það síðasti opnunardagur þessa skólaárs.

  • Skólaslitin fara fram í íþróttahúsinu föstudaginn 5. júní kl. 18:00.
  • Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig er hægt að skila inn Unicef áheitum.
  • Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá.

Að sumarleyfi loknu verður Hrafnagilsskóli settur mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.

Skólastjórnendur