Til foreldra og forráðamanna nemenda í verðandi 1. bekk

Komið þið sælir kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í verðandi 1. bekk

Fimmtudaginn 4. júní klukkan 15:00 langar okkur til að bjóða ykkur að koma í heimsókn í Hrafnagilsskóla og fá kynningu á skólastarfinu og hitta starfsfólk. Við tökum á móti ykkur á svæði sem kallast Hjartað en gengið er inn um forstofu yngsta stigs  sem er í vesturhluta skólans. Við göngum saman um skólann, skoðum kennslustofu bekkjarins og þið fáið kynningu á skólastarfinu, áherslum á  yngsta stigi og sýn og stefnu skólans. Þar gefst ykkur einnig tækifæri til þess að spyrja nánar út í skólastarfið. 

Bestu kveðjur,
Björk, Ása og Ástrós