Stóra upplestrarkeppnin í Hrafnagilsskóla

Sú hefð er við Hrafnagilsskóla að formlegur undirbúningur fyrir keppnina hefst ávallt á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert. Þá er haldin heljarinnar hátíð og stíga nemendur 7. bekkjar á svið og að þessu sinni fluttu þeir efni um krummann en þemað á þemadögum fyrir Dag íslenskrar tungu var einmitt krumminn.

þann 13. apríl stigu nemendur 7. bekkjar á stokk og fluttu textabrot og ljóð fyrir fullum sal á bókasafni Eyjafjarðarsveitar. Nemendur stóðu sig með stakri prýði enda hafa þeir lagt hart að sér undanfarna mánuði. 

Keppnin fer þannig fram að nemendur stíga tvisvar í pontu. Í fyrri umferð er lesinn texti en í þeirri seinni er lesið ljóð. Að þessu sinni varð fyrir valinu textabrot úr bókinni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason en hún er æsispennandi saga um ungar fótboltahetjur sem fara til Vestmannaeyja til að keppa á peyjamótinu í fótbolta.

Fyrir seinni umferðina höfðu nemendur valið sér ljóð. Þeir kynntu ljóð og höfund og var gaman að sjá persónueinkenni nemenda í gegnum áhugamál eða annað sem skiptir þá máli endurspeglast í ljóðavalinu.

Dómnefndina skipuðu Benedikt Bragason, Margrét Baldvina Aradóttir og Sveinn Rúnar Sigmundsson.
Dómnefnd: Benedikt Bragason, Margrét Baldvina Aradóttir og Sveinn Rúnar Sigmundsson.

Dómnefndina skipuðu Benedikt Bragason, Margrét Baldvina Aradóttir og Sveinn Rúnar Sigmundsson. Dómnefnd hrósaði keppendum fyrir góðan upplestur en jafnframt nemendum í 6. bekk fyrir góða áheyrn enda skiptir það sköpum á viðburði eins og þessum að gefið sé gott hljóð og virðing sé sýnd með virkri hlustun. Dómnefndin hafði orð á því að erfitt hefði verið að velja fulltrúa þar sem nemendur hefðu allir lesið vel en tvo þyrfti að velja sem aðalmenn og tvo sem varamenn.

Að þessu sinni voru það Gunnar Krishna Þorgilsson og Rannveig Rut Reynisdóttir sem valin voru sem fulltrúar bekkjarins en Árni Helgason og Kári Hermannsson eru varamenn.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin á Siglufirði þriðjudaginn 28. apríl og mun 7. bekkurinn fara og styðja fulltrúa sína.

Við óskum krökkunum öllum til hamingju með þennan áfanga.