Myndræn framsetning á skólastefnu Hrafnagilsskóla

Í fyrravetur fór fram endurskoðun á skólastefnu Hrafnagilsskóla en allt starfsfólk kom að henni og menntastefna Eyjafjarðarsveitar var höfð til hliðsjónar. Skólastefna Hrafnagilsskóla er rótgróin og stenst tímans tönn en hún byggir fyrst og fremst á skólasýninni „Að allir hafi hið góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur.“

Skólasýn Hrafnagilsskóla felur í sér þann grundvallarskilning að hver og einn búi yfir góðvild og tiltrú. Við lærum af mistökum okkar og getum bætt fyrir misgjörðir. Við leitumst við að verða betri manneskjur í dag en við vorum í gær.

Skólastefna Hrafnagilsskóla hefur þrjú megingildi að leiðarljósi í starfi sínu. Þau eru: Fagmennska, dyggðir og skilningur.

  • Fagmennska
    Hrafnagilsskóli vinnur markvisst að því samkvæmt yfirlýstum aðferðum að hver nemandi fái kennslu við hæfi; áhersla er á læsi, útinám, list- og verknám, leiðsagnarnám og nýtingu tækni. Umbótamiðuð vinnubrögð einkenna öll störf og unnið er samkvæmt áætlunum. Stjórnendur bera ábyrgð á innra mati og eru faglegir leiðtogar.

  • Dyggðir
    Skólastarfið byggir á dyggðakennslu þar sem áhersla er á virðingu fyrir öllum, ábyrgri hegðun, góðvild og vingjarnleika í samskiptum.

  • Skilningur
    Skilningur er grundvallarviðhorf í skólasamfélaginu með það að leiðarljósi að allir hafi hið góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur.

Í vetur fengum við Ingibjörgu Berglindi Guðmundsdóttur grafískan hönnuð til þess að hanna myndir og tákn fyrir skólastefnuna. Okkur þykir mikilvægt að glæða textann lífi með myndum og markmiðið er að festa ákveðnar myndir í sessi þannig að fólk þekki gildi og dyggðir af myndunum.

Við erum afskaplega ánægð með afraksturinn og samstarfið en Ingibjörg teiknaði einnig mynd fyrir hverja dyggð. Við byggjum skólastarfið á níu dyggðum og nú á hver dyggð sína mynd.