Tímabundin staða kennara við Hrafnagilsskóla
40% kennarastaða
Leitað er eftir kennara í 40% starf. Kennarar eru faglegir leiðtogar og sjálfstæðir í vinnubrögðum en þurfa jafnframt að vinna í teymi og í nánu samstarfi við aðra kennara og stoðteymi skólans. Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
- Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að skipuleggja og undirbúa nám og kennslu.
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
- Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Í öllum störfum við Hrafnagilsskóla er gerð krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2026.