Nýi salurinn fær nafnið Ásinn
Nýi sameiginlegi salur Hrafnagilsskóla og Krummakots hefur formlega fengið nafn. Nemendur og starfsfólk beggja skóla tóku höndum saman í nafnakosningu í marsmánuði og varð Ásinn fyrir valinu.
Í fyrstu fengu allir tækifæri til þess að skila inn hugmyndum og úr þeim valdi sérstök nafnanefnd fjórar tillögur til að kjósa um. Í fyrri kosningunum stóð valið á milli fjögurra hugmynda, þær voru: Ásinn, Skýið, Laupurinn og Laufið. Eftir góða þátttöku var ljóst að Ásinn og Skýið nutu mestra vinsælda og fóru þau tvö nöfn því áfram í lokaumferðina.
Úrslitakosningin reyndist ansi jöfn og spennandi. Þegar öll atkvæði höfðu ,,verið talin” bar Ásinn sigur úr býtum en það munaði aðeins átta atkvæðum á nöfnunum.
Nafnveitingarferlinu er þar með lokið og glæsilegur salur skólanna hefur fengið nafn sem mun fylgja honum um ókomin ár.