Í dag var haldin hin árlega spurningakeppni milli bekkja á unglingastigi. Þessi skemmtilega hefð hefur verið við lýði í skólanum í yfir 20 ár og er alltaf jafn vinsæl meðal nemenda og kennara.

Fulltrúar bekkjanna stóðu sig allir með stakri prýði, en í ár kepptu eftirfarandi nemendur:

  • 8. bekkur: Einar Hjalti Steingrímsson, Anný Henríetta Knútsdóttir og Halldóra Brá Hákonardóttir.

  • 9. bekkur: Jónatan Þór Sigurjónsson, Marinó Breki Logason og Bjarni Egill Sigtryggsson.

  • 10. bekkur: Katrín Björk Andradóttir, Ragnheiður Birta Hákonardóttir og Haukur Skúli Óttarsson.

Keppnin var æsispennandi að vanda og úrslitin réðust ekki fyrr en á allra síðustu spurningu. Sannkölluð naglbítastemning myndaðist í salnum þegar öll liðin voru orðin jöfn, öll með 35 stig!

Að lokum var það þó 10. bekkur sem bar sigur úr býtum og tryggði sér fyrsta sætið með 39 stig. 9. bekkur fylgdi þeim fast á hæla og landaði 2. sæti með 38 stig, og 8. bekkur endaði í þriðja sæti með 35 stig.

Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum fyrir bráðskemmtilega keppni sem hélt áhorfendum á tánum allt til enda!