Danssýning nemenda í 1.–4. bekk Hrafnagilsskóla og elsta árgangs leikskólans Krummakots fór fram í íþróttahúsinu í dag. Sýningin markar lok danskennslu síðustu vikna þar sem nemendur hafa unnið að fjölbreyttum dönsum.
Kennsla og stjórn sýningarinnar var að vanda í höndum Elínar Halldórsdóttur danskennara. Á sýningunni fluttu nemendur þá dansa sem æfðir hafa verið á tímabilinu. Áhorfendapallar voru þétt skipaðir aðstandendum og öðrum gestum sem fylgdust með dagskránni.
Danskennsla hefur verið fastur liður í skólastarfinu um árabil. Elín Halldórsdóttir hefur stýrt kennslunni við skólann frá haustinu 2001.
Sýningin gekk vel fyrir sig og var nemendum, kennara og skólanum til sóma.

