Þriðjudaginn 10. mars hélt Ástrós Guðmundsdóttir, kennari við Hrafnagilsskóla, námskeið fyrir leikskólakennara og starfsfólk á Krummakoti þar sem fjallað var um ábyrga notkun gervigreindar í starfi kennara.

Á námskeiðinu var farið yfir hvað gervigreind er og hvernig tæknin hefur þróast á undanförnum árum. Einnig var rætt um helstu kosti hennar og áskoranir, sérstaklega í tengslum við störf kennara og starfsfólks í skólum.

Lögð var áhersla á hvernig kennarar geta nýtt gervigreind sem stuðning í starfi, til dæmis við undirbúning kennslu, hugmyndavinnu og til að finna lausnir á verkefnum sem geta komið upp í daglegu starfi í leikskólum.

Leikskólakennararnir fengu einnig kynningu á nokkrum gagnlegum verkfærum sem hægt er að nýta í starfi, meðal annars NotebookLM og hvernig hægt er að nýta Canva í einfalda forritun á námsleikjum og öðrum skapandi verkefnum. 

Á námskeiðinu sköpuðust góðar umræður um hvernig tæknin getur stutt við faglegt starf kennara þegar hún er notuð á faglegan, ábyrgan og gagnrýninn hátt.