Hrafnagilsskóla barst nýverið afar vegleg gjöf. Fyrirtækið G V Gröfur ehf færði skólanum vandað þráðlaust hljóðnemakerfi. Það voru þau mæðginin, Helena Sif Guðmundsdóttir og Gunnar Ingi Arnarsson, nemandi í 2. bekk, sem afhentu skólanum búnaðinn formlega fyrir hönd fyrirtækisins.
Gjöfin samanstendur af tveimur vönduðum þráðlausum hljóðnemum, móttökustöð sem tengist hljóðkerfi skólans og hleðslukerfi með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Þessi nýi búnaður kemur til með að stórbæta hljóðgæði á samverustundum skólans.
Starfsfólk Hrafnagilsskóla vill koma á framfæri kæru þakklæti til G V Grafa fyrir þennan velvilja í garð skólans og að sjálfsögðu til þeirra mæðgina Helenu og Gunnars Inga fyrir að koma og færa skólanum þessa glæsilegu gjöf.

