Dagana 10. – 15. maí stendur yfir skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að skrá nemendur í verðandi 1. bekk (börn fædd 2018) og einnig aðra nýja nemendur sem væntanlegir eru í skólann næsta haust. Á sama tíma er tekið á móti tilkynningum um flutning nemenda af svæðinu. 

Þeir sem ætla að notfæra sér frístund næsta vetur (fyrir nemendur í 1.- 4. bekk) eru beðnir að tilkynna það þessa sömu daga, skráning er ekki bindandi. 

Skráning fer fram hjá ritara skólans á virkum dögum milli kl. 9:00-14:00 í síma 464-8100. 

Skólastjóri