Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 19. janúar n.k. Hún hefst kl. 19:30 og stendur til kl. 22:30. Skólabílar aka heim að balli loknu.

Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna stytta útgáfu úr bíómyndinni ,,Footloose“ og kennarar á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu. Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði.

  • Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur á grunnskólaaldri og það kostar 2.000 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu. 
  • Ágóðinn rennur allur til nemenda, bæði í ferðasjóð 10. bekkjar og til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og fleira fyrir nemendur unglingastigs.
  •  Athugið að ekki er posi á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nemendur á unglingastigi