Þriðjudaginn 22. ágúst hefst nýtt skólaár með skólasetningu í íþróttahúsi kl. 13:00. Foreldrar eða forráðamenn mæta með barni sínu.
Nemendur fara að sínum heimastofum og ganga með umsjónarkennara inn í salinn en foreldrar og forráðamenn sitja uppi í stúku.
Eftir athöfnina ganga umsjónarkennarar með hópana sína í heimastofur og þar fá nemendur og foreldrar kynningu á skólastarfi komandi vetrar.
Nemendur í 1. bekk hitta umsjónarkennara sinn í skipulögðum viðtölum fyrir skólabyrjun og fá tímasetningar sendar í næstu viku.