Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 19:00.

Dagskráin hefst á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Að því loknu sýna nemendur í 5., 6. og 7. bekk stytta útgáfu af leikritinu Konungi ljónanna sem byggt er á bandarísku teiknimyndinni Lion King.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu. Síðan verður stiginn dans undir tónlist sem nemendur á miðstigi hafa valið af kostgæfni og aldrei að vita nema Elín Halldórsdóttir komi við og kenni okkur réttu sporin. Skemmtuninni lýkur kl. 21:30.

  • Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri,
  • 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðrir en sýnendur)
  • og frítt fyrir þá sem yngri eru.

Allur ágóði fer í sjóð sem greiðir niður lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Athugið að ekki er posi á staðnum. 

Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir!

Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla