Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 13. janúar n.k. Hún hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 23:00. Skólabílar aka heim að balli loknu.

Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna stytta útgáfu af söngleiknum ,,Grease“ og kennarar á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu.

Verð aðgöngumiða er 800 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.500 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu. Ágóðinn rennur allur til nemenda, bæði í ferðasjóð 10. bekkjar og til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og fleira fyrir nemendur unglingastigs.

 Athugið að ekki er posi á staðnum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur á unglingastigi