Litlu jólin hjá nemendum á yngsta- og miðstigi voru 20. desember. Á hátíðinni dönsuðu nemendur í 1.- 7. bekk í kringum jólatré, horfðu á jólaleikrit og áttu notalega stund í heimastofu. Jólasveinar mættu á staðinn og gáfu börnunum góðgæti.
Nú eru allir í skólanum komnir í kærkomið jólafrí en kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. janúar 2023.
Gleðileg jól.