Samtökin 78


Fimmtudagskvöldið 29. september kl. 20:00 býður Foreldrafélag Hrafnagilsskóla, í samvinnu við Hrafnagilsskóla og skólanna í kringum Akureyri, foreldrum á fræðsluerindi frá Samtökunum 78.

Fræðslan fer fram í stofum 6 og 7 í Hrafnagilsskóla og það er Lilja Ósk Magnúsdóttir sem flytur erindið og svarar fyrirspurnum.
Þennan sama dag fá nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla fræðslu og það skapar góðan umræðuvettvang heima ef foreldrar koma og þiggja fræðsluna.

Kynning á fræðslunni (tekið af heimasíðunni https://samtokin78.is/um-samtokin-78)

Við ræðum hinseginleikann í allri sinni dýrð. Við erum öll að læra og mikilvægt er að spyrja spurninga og taka virkan þátt í fræðslunni til að læra sem mest og best. Við leggjum okkur fram við að vera skýr, koma fram af heilindum og af virðingu við þau sem fá fræðslu. Hinseginfræðin eru allskonar rétt eins og hinseginleikinn sjálfur.
Í fræðslu Samtakanna ’78 er fjallað um hinseginleika, hvað það þýðir að vera hinsegin og hvert er hægt að leita fyrir aðstoð og stuðning.