Þóra Víkingsdóttir kennir valgrein á unglingastigi þar sem nemendur læra ýmislegt í heimilisfræði, bæði tengt matarundirbúningi, matreiðslu, framreiðslu og ekki síst að njóta þess að borða saman.
Í nemendahópnum eru tvær stúlkur frá Litháen og í gær eldaði hópurinn tvo vinsæla litháenska rétti.
Á myndunum má sjá čeburėkai su mesa (hálfmánarnir) og Koldūnai (litlu hringirnir). Eins og sjá má á myndunum var heilmikil veisla og nákvæmnisvinna sem liggur að baki.