Nemendur 10. bekkjar unnu skemmtilegt verkefni í stærðfræði í haust þar sem sköpunargleði þeirra fékk að njóta sín. Nemendur unnu í pörum og verkefnið var lagt fyrir eftir að unnið hafði verið með markmið tengd formum og rúmfræði. Nemendur fengu það verkefni að hanna og smíða lampa sem þurfti að vera samsettur úr a.m.k. tveimur formum, reikna rúmmál þessara forma og útlista framkvæmd, byggingarferli, útreikninga og úr hverju lampinn var gerður. Aukastig voru gefin fyrir frumlega nálgun og að finna nafn á lampann!
Meðfylgjandi eru myndir af tveimur ólíkum lömpum, annar sem er aðallega sívalningur og hinn neðri partur úr keilu.