Sprengidagshátíð verður haldin í Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 25. febrúar 2020 frá kl. 13:20-15:45. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni.

Sjoppan verður opin og nemendur í 10. bekk selja þar pítsur, popp, sælgæti og svala. Dæmi um verð í sjoppunni;

pítsusneið 350 kr.

popp-poki 250 kr.

gos 300 kr.

svali 150 kr.

súkkulaðistykki á bilinu 50-200 kr.

jarðaberjasælgæti 150 kr.

sleikipinni 50 kr.

Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og slökunarherbergi. Ljósmyndastöð verður á staðnum og boðið verður upp á andlitsmálningu og hárgreiðslu. Allir nemendur eru hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.

Öll lið mega syngja á sviðinu í íþróttahúsinu og gaman væri að sjá sem flesta taka í viðburðinum. 

Veittar verða viðurkenningar fyrir söng og búninga sem skara framúr.

Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.

Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 27. og 28. febrúar. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 2. mars. Það skal tekið fram að engin frístund verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana tvo.