Þriðjudaginn 3. mars ráðgerum við að fara í skíðaferð í Hlíðarfjall. Þessi dagsetning er háð því að veður verði skaplegt. Þeir nemendur sem ætla að leigja skíði eða bretti  í skíðaleigunni í Hlíðarfjalli verða að panta búnaðinn fyrirfram, þá verður mun fljótlegra að fá skíðin/brettin afgreidd þegar við komum. Til þess að þetta sé hægt þurfa foreldrar að senda tölvupóst á nanna@krummi.is  þar sem fram kemur að barnið megi panta sér skíði/bretti og hvort barnið sé byrjandi eða vant. Við mælum hæð, þyngd og skóstærð nemandans og komum þeim upplýsingum til starfsmanna skíðaleigunnar. Vegna öskudags og vetrarfrís dagana 26. til 28. febrúar þurfa þessar upplýsingar að berast til skólans eigi síðar en föstudaginn 21. febrúar.

Börnin greiða fyrir búnaðinn hjá Nönnu þegar mælingar eru teknar.

 Annar möguleiki er að leigja skíði hjá Skíðaþjónustunni í Fjölnisgötu og ef foreldrar ætla að gera það hafa þeir samband beint þangað.

Verð eru eftirfarandi: 

  • Skíði/bretti í Hlíðarfjalli kr. 2.500.
  • Skíði/bretti í Skíðaþjónustunni kr. 1.900 (þarf að sækja daginn áður og segja að barnið/unglingurinn sé nemandi í Hrafnagilsskóla).

Við ætlum að fara að morgni og koma til baka að skóla um kl. 14:00. Skólabílar keyra alla, nesti kemur úr mötuneyti og árshátíðarsjóður nemenda greiðir lyftugjöld. Starfsfólk skólans segir byrjendum til eftir bestu getu. Nemendur geta haft með sér aukanesti og mega koma með peninga til að versla í veitingasölunni í Hlíðarfjalli. Allir þurfa að vera hlýlega klæddir og það er skylda að vera með hjálma en þá er hægt að fá lánaða í Hlíðarfjalli. Það er auðvitað leyfilegt að koma með sleða með sér og renna sér í nágrenni við ,,skíðahótelið“.

Foreldrar þurfa að tilkynna umsjónarkennara ef börn þeirra eiga ekki að ferðast með skólabíl.

Að sjálfsögðu eru allir foreldrar og forráðmenn velkomnir með en sjá þá sjálfir um skíðabúnað sinn og mat.

Frístund verður með eðlilegum hætti eftir skíðaferðina.