Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg,
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 19:30.
Dagskráin hefst á dansatriði stúlkna í 6. bekk og tónlistaratriði frá
Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Að þeim loknum sýna nemendur í 5., 6. og
7. bekk stytta útgáfu af leikritinu um Línu Langsokk eftir Astrid
Lindgren.
Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan
verður stiginn dans og mun Elín Halldórsdóttir stjórna honum eins og
henni einni er lagið.
Skemmtuninni lýkur kl. 22:00. Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir 16 ára
og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri og frítt fyrir þá sem
yngri eru. Allur ágóði rennur til nemenda, bæði til að greiða
lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar
þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Athugið að ekki er posi á
staðnum.
Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla