Árshátíð unglingastigs var haldin í Laugarborg fimmtudaginn 19. janúar. Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýndu stytta útgáfu af söngleiknum ,,Footloose“ og kennarar á unglingastigi leikstýrðu. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sáu nemendur um búninga, leikmynd, förðun og alla tæknivinnu. Hér má sjá myndir frá þessari frábæru sýningu sem Jóhann Ólafur Halldórsson tók. Til hamingju foreldrar með flottu unglingana ykkar og til hamingju starfsfólk og nemendur Hrafnagilsskóla.