Þessa dagana er í gangi lestrarhvetjandi verkefni um allt land. Hér er að finna upplýsingar um landsleikinn Allir lesa, sem samtökin Heimili og skóli eru aðilar að. Einnig minnum við á lestrarátak Ævars vísindamanns sem Hrafnagilsskóli tekur þátt í.
Nú styttist í hinn stórskemmtilega landsleik Allir lesa og eru foreldrar sérstaklega hvattir til að mynda lið með börnunum sínum. Gott væri ef þið gætuð komið þessum upplýsingum á framfæri við foreldra barna í skólanum.
Bæði er hægt að skrá þann tíma sem hver og einn liðsmaður les sjálfur og einnig má skrá tíma sem lesinn er fyrir börnin, bæði á þann sem les og þann sem hlustar. Þegar börn lesa fyrir foreldra gildir hið sama, tíminn skráist á báða aðila. Lið samanstanda af þremur eða fleiri liðsmönnum og má skrá allan aldur, jafnvel nokkurra daga gömul kríli geta verið mikilvægir liðsmenn. Börn og fullorðnir verja æ meiri tíma fyrir framan skjái og því er tilvalið að byrja árið á því að verja meiri tíma í yndislestur.
Landsleikurinn varir frá 27. janúar til 19. febrúar og allir geta myndað lið, eða keppt sem einstaklingar.
Skráning er hafin á
allirlesa.is en þar er einnig að finna frekari upplýsingar um leikinn.
|
Lestur gerir lífið skemmtilegra. Allir lesa – landsleikur í lestri, gengur út á að skrá lestur á einfaldan hátt og halda þannig eigin lestrardagbók.
|
Einnig má sjá upplýsingar um framtakið hér á vef Heimilis og skóla:
http://www.heimiliogskoli.is/laesi/allir-lesa-landsleikur-i-lestri/