Um helgina mættu nokkrar galvaskar fjölskyldur upp í Aldísarlund og hjálpuðust að við að koma upp nýju eldstæði. Fulltrúar í stjórn foreldrafélagsins voru í forsvari og erum við í Hrafnagilsskóla afar þakklát fyrir þetta frábæra framtak og hlökkum til að nýta okkur þetta nýja eldstæði.