Hátíðin verður haldin í Laugarborg þriðjudaginn 19. apríl frá klukkan 14:00—16:00. Tónlistaratriði verður í flutningi nemenda 4. bekkjar og síðan er sýning sem fjallar um himingeiminn og verur sem í honum búa. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.
Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri en 1.400 kr. fyrir eldri. Frítt er fyrir börn sem ekki eru byrjuð í grunnskóla. Veitingar eru innifaldar í verði. Ágóði af miðasölu og sjoppu rennur í ferðasjóð nemenda og einnig til að greiða lyftugjöld í skíðaferð. Athugið að ekki er posi á staðnum.
Sjoppan verður opin og þar er hægt að kaupa gos, svala og sælgæti. Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.