Fimmtudaginn 10. mars var árshátíð miðstigs haldin í Laugarborg. Þar sýndu nemendur 5., 6. og 7. bekkjar stytta útgáfu af leikritinu ,, Konungi ljónanna“ og tókst sýningin í alla staði vel. Nemendur blómstruðu á sviðinu, sungu, dönsuðu og léku. Áður höfðu þeir útbúið leiksmynd, búninga og leikskrá og einnig sáu nemendur um tæknimálin í samvinnu við umsjónarkennarana sína.
Boðið var upp á tónlistaratriði og það sama var uppi á teningnum, nemendur stóðu sig með mikilli prýði. Eftir leiksýninguna stjórnaði Elín Halldórsdóttir dansi og boðið var upp á hressingu.
Skemmtunin tókst í alla staði vel og starfsfólk Hrafnagilsskóla er afar stolt af frammistöðu nemenda.