Nú er undirbúningur á fullu fyrir árshátíð unglingastigs en hún fer fram föstudaginn 22. janúar næst komandi. Að þessu sinni verður söngleikurinn Mamma Mia sýndur og er óhætt að lofa góðri sýningu. Af þessu tilefni gerðu nokkrir nemendur stutta heimildarmynd um sviðsetningu söngleiksins góða.