Vegna hugsanlegs verkfalls skólabílstjóra Hrafnagilsskóla 6. og 7. maí n.k.
Hafi Starfsgreinasambandið ekki samið við viðsemjendur sína kemur til verkfalls hjá skólabílstjórum Hrafnagilsskóla dagana 6. og 7. maí n.k. Samkvæmt upplýsingum frá forsvarsmanni Hópferðabíla Akureyrar er lítið samningahljóð í fólki og afar líklegt að til verkfallsins komi. Að sjálfsögðu verður Hrafnagilsskóli starfandi þessa daga en foreldrar þurfa sjálfir að koma börnum sínum í skólann og sækja þau að honum loknum. Við hvetjum foreldra til að hafa samráð og sameinast um akstur.