Í síðustu skólaviku fyrir páskafrí var margt skemmtilegt brallað í Hrafnagilsskóla. Danskennslu vetrarins lauk með glæsilegri danssýningu nemenda 1. – 5. bekkjar og þökkum við Elínu Halldórsdóttur fyrir danskennsluna í vetur.
Á föstudaginn fór fram hin árlega spurningakeppni nemenda á unglingastigi “Gettu betur” og enduðu leikar svo að þessu sinni að lið 10. bekkjar vann.
Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska og hefjum skólastarf að nýju þriðjudaginn 7. apríl samkvæmt stundaskrá.