Föstudaginn 14. nóvember verður Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla. Hátíðin hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 14:45. Nemendur munu flytja atriði í tali og tónum tengd þema dagsins sem að þessu sinni er jafnrétti. Einnig munu nemendur 7. bekkjar minnast þjóðarskáldsins Jónasar Hallgrímssonar, með upplestri á ljóðum hans.
Nemendur í 10. bekk standa fyrir kaffisölu að lokinni dagskrá. Þar verður standandi hlaðborð og eru verð eftirfarandi:
- 0-5 ára – ókeypis
- 1.-10. bekkur – 600 kr.
- Þeir sem lokið hafa grunnskóla 1.200 kr.
Einnig munu nemendur 10. bekkjar selja gjafapakkningar sem innihalda kaffi og sælgæti. Enginn posi er á staðnum. Ágóði rennur í ferðasjóð 10. bekkjar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla