Þungarokkshljómsveit 4. bekkjar, 21. okt. 2014 (6)Allir nemendur 4. bekkjar læra á hljóðfæri í forskóla hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðarsveitar. Þar ráða ríkjum Jakub Kolosowski og Eiríkur Stephensen.  Á samverustund í vikunni mátti sjá afrakstur af æfingum haustsins þegar ,,þungarokkshljómsveitin Barbie“ flutti lagið Krummi svaf í klettagjá. Meðfylgjandi myndir voru teknar á samverustundinni.