Hrafnagilsskóli verður settur föstudaginn 22. ágúst kl. 13:00 í íþróttahúsinu. Eftir skólasetninguna kynna umsjónarkennarar starf skólaársins í heimastofum bekkjanna. Mikilvægt er að foreldrar mæti með börnum sínum. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með foreldrum/forráðamönnum föstudaginn 22. ágúst og mæta einnig á skólasetninguna.

Þeir foreldrar sem ætla að nýta sér pláss í Frístund (skólavistun) á komandi skólaári eru beðnir að sækja um eða staðfesta eldri bókanir fyrir 22. ágúst hjá ritara í síma 464-8100 eða með því að senda póst á nanna@krummi.is

Minnum á innkaupalistana á heimasíðu skólans.

Skólastarf hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst og starf Frístundar sama dag.

Skólastjórnendur