Hátíðin verður haldin í Laugarborg þriðjudaginn 1. apríl frá klukkan 14:00—16:00. Tónlistaratriði verður í flutningi 4. bekkjar. Nemendur flytja stytta útgáfu af leikritinu um Ronju ræningjadóttur. Að loknum skemmtiatriðum verður dansað.
Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri en 1.200 kr. fyrir eldri. Frítt er fyrir börn sem ekki eru byrjuð í skóla. Veitingar eru innifaldar í verði. Ágóði af miðasölu og sjoppu rennur í ferðasjóð nemenda og einnig til að greiða lyftugjöld í skíðaferð.
Sjoppan verður opin og þar er hægt að kaupa gos, svala og sælgæti. Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.