Í dag klukkan 13:00 keppa fulltrúar Hrafnagilskóla í Skólahreysti sem er íþróttakeppni grunnskóla á Íslandi. Keppt er m.a. í þrautabraut, upphífingum og armbeygjum. Fulltrúar Hrafnagilsskóla eru Rebekka Garðarsdóttir, Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, Guðmundur Smári Daníelsson og Ragnar Ágúst Bergmann Sveinsson. Nemendur og kennarar á unglingastigi fara með á keppnina sem er í íþróttahöllinni á Akureyri. Skólarútur keyra nemendur inn á Akureyri og til baka.