Árshátíð miðstigs 2014
Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 27. febrúar og hefst kl. 20:00.
Boðið verður upp á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af söngleiknum Bugsy Malone.
Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan verður stiginn dans.
Skemmtuninni lýkur kl. 22:30. Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir grunnskólanemendur, 1.200 kr. fyrir eldri og frítt fyrir þá sem hafa ekki náð grunnskólaaldri. Allur ágóði rennur til nemenda, bæði til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Athugið að ekki er posi á staðnum.
Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla
Hér má sjá myndir sem teknar eru á æfingu.
[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“]






