Síðastliðinn föstudag var haldin söngkeppni á Akureyri.  Þetta er undankeppni fyrir stóru söngkeppnina sem haldin er fyrir sunnan og ber nafnið SamFestingur.  Fyrir hönd Hyldýpisins kepptu þeir Birkir Blær Óðinsson, Elmar Blær Arnarsson, Haukur Sindri Karlsson og  Þorlákur Már Aðalsteinsson.  Stóðu þeir sig með mikilli prýði, atriðið var eitt af fimm sem komust áfram í keppnina fyrir sunnan en hún verður haldin 8. mars nk.
Vel gert strákar, erum agalega stolt af ykkur!

Ljósmyndari: Eyþór Ingi Jónsson