Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 31. janúar n.k. Hún hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 23.30. Ekið er heim að balli loknu.

 Nemendur í 8., 9. og 10. bekk  sýna stytta útgáfu af söngleiknum Grease og kennarar  á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, leikmynd, förðun og alla tæknivinnu.

Verð aðgöngumiða er 600 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.200 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu.

Allir eru hjartanlega velkomnir.