Foreldrum nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla er boðið á kynningu í skólann föstudaginn 6. september kl. 08:45. Foreldrar eru hvattir til að koma á samverustund sem byrjar kl. 08:15 í miðrými skólans, Hjartanu, áður en kynningin hefst.
Á kynningunni verður farið yfir sýn og stefnu skólans, agastefnuna Jákvæðan aga og fleira sem tengist skólastarfinu. Gengið verður um skólann og foreldrum gefst kostur á að ræða við skólastjórnendur. Gert er ráð fyrir að heimsókninni ljúki kl. 9:45.