Úrslit liggja fyrir í BEST-stærðfræðikeppninni. Verkefni Hrafnagilsskóla fékk 1. verðlaun og í þrautalausnahlutanum fengum við 2. verðlaun. Samanlagt vorum við í 2. sæti og munaði einungis 1,5 stigum á fyrsta og öðru sæti. Við óskum nemendum til hamingju með þennan frábæra árangur. Í liði Hrafnagilskóla sem voru fulltrúar okkar í lokakeppninni voru þau Erna Sól, Hallur Aron, Haukur Gylfi og Sara.