Jón Hlöðver Áskelsson samdi lag sem hann gaf skólanum. Ákveðið var að nota lagið á Degi íslenskrar tungu og fá nemendur til að taka þátt í að semja texta við lagið. Nemendur allra bekkja bjuggu til eina krossglímu úr orðinu hrafn. Þær voru síðan sendar til Sveins Rúnars Sigmundssonar á Vatnsenda og samdi hann texta út frá þeim orðum sem voru í krossglímunum. Lagið verður frumflutt á Degi íslenskrar tungu sem verður haldinn hátíðlegur næstkomandi föstudag.
%%wppa%% %%cover=6%%