Föstudaginn 8. september var Dagur læsis. Í Hrafnagilsskóla voru sett saman bekkjapör þar sem eldri og yngri nemendur unnu saman á ýmsa vegu. Sem dæmi má taka að í 2. og 7. bekk sömdu nemendur tveir og tveir saman svokallaðar dótasögur. Það gekk mjög vel og bæði yngri og eldri ánægðir með afraksturinn.