Skólasetning

Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst kl. 10:00 í íþróttahúsinu. Eftir skólasetninguna kynna umsjónarkennarar starf haustannar í kennslustofum. Mikilvægt er að foreldrar mæti með börnum sínum.

Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með foreldrum/ forráðamönnum dagana 21. og 22. ágúst og mæta einnig á skólasetninguna.

Þeir foreldrar sem ætla að nýta sér skólavistun á komandi skólaári eru beðnir að sækja um eða staðfesta eldri bókanir fyrir 22. ágúst hjá ritara s: 464-8100 eða með því að senda póst á nanna@krummi.is

Minnum á innkaupalistana á heimasíðu skólans.

Skólastarf hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst og skólavistun sama dag.

Skólastjóri