IMG_0192Í dag og í gær voru umhverfisdagar í Hrafnagilsskóla. Í dag fór yngsta stig í göngutúr í Botnsskóg og miðstig gat valið um mismunandi stöðvar. Við tókum viðtal við nokkra krakka sem voru að hanna og sauma innkaupapoka.

Í hvað eru pokarnir ætlaðir?
Innkaup og fleira.

Finnst þér skemmtilegt?
Já, mjög.

Hvað finnst þér skemmtilegast?
Sauma í saumavél.

Ertu ánægð/ur með verkefnið þitt?
Já, mjög.

Hvað eru þið að gera?
Búa til poka innkaupapoka.

Af hverju valdir þú að fara að gera innkaupapoka?
Bara, mér finnst það spennandi.

Ertu góð/ur í textíl?
Ekkert svaka, bara pínu.

Hvort er Selma eða Katrín betri að sauma?
Jafn góðar.

 

 

IMG_0195IMG_0196
IMG_0197IMG_0199

Fréttamenn:
Aðalheiður Anna Atladóttir og Ragnhildur Tryggvadóttir