Lið 9. bekkjar sem þátt tók í BEST-stærðfræðikeppninni fékk 1. verðlaun fyrir bekkjarverkefnið með sólblómunum sem sjá má hér að neðan og lentu í 2. sæti í stærðfræðikeppninni sjálfri sem lauk núna um hádegið. Lið Hagaskóla sigraði með 23 stig en Hrafnagilsskóli fékk 22 stig. Í liðinu okkar voru Arna Ýr Karelsdóttir, Fjölnir Brynjarsson, Heiða Hansdóttir og Jakob Atli Þorsteinsson og fá þau bestu hamingjuóskir með frábæran árangur sem og allur 9. bekkur fyrir vönduð vinnubrögð.