Mikið hefur safnast fyrir af óskilamunum í skólanum frá því um áramót. Á samverustund í morgun var öllum óskilamunum komið fyrir á einn stað fyrir allra augum í þeim tilgangi að vekja til umhugsunar hvernig við göngum um verðmæti okkar og eigur. Foreldrar eru hvattir til að koma í skólann og kanna hvort ekki leynist þar t.d. húfa, handklæði eða íþróttagalli sem mikið er búið að leita að heima.