Nemendur í 7. bekk Hrafnagilsskóla eru tóbakslaus bekkur og vinna nú að þátttöku í samkeppni sem Lýðheilsustofnun efnir til árlega í tengslum við þetta verkefni. Krakkarnir ætla að gera stuttmynd og senda inn í keppnina og eru þessa dagana að vinna að handritsgerð og upplýsingaöflun um skaðsemi tóbaks.